Hjólakraftur í samstarfi við Umf. Samherja-æfingar

Hjólakraftur í samstarfi við Umf. Samherja verða með hjólaæfingar í vetur og mættu 26 á fyrstu æfinguna. Allt ungt fólk á aldrinum 11-18 ára er meira en velkomið og foreldrar mega að sjálfsögðu mæta með, en bara ef unga fólkið kærir sig um. Hér ráða krakkarnir nefnilega og það kostar ekkert að prófa. Næsta æfing er miðvikudaginn 31. ágúst klukkan 17:30 á planinu við Hrafnagilsskóla og verður hjólað eitthvað á vit ævintýranna í nágrenni Hrafnagils.

Fræðast má um verkefnið Hjólakraft hér.

Hér má sjá mynd frá fyrstu æfingu en þá mættu 26 ungmenni og skemmtu sér vel. 

Mynd frá fyrstu æfingunni