Hjólreiðafélag Akureyrar heldur mót á laugardaginn

Hjólreiðafélag Akureyrar mun standa fyrir fyrsta hjólreiðamóti ársins núna á laugardaginn 6. maí.
Þetta mót er svo kallað Time Trial eða TT mót og eru keppendum startað einum í einu og snýst
keppninn um að hjóla sem hraðaðst frá afleggjaranum við Kjarnaskóg í gegn um Hrafnagil þar sem
snúið verður við og til baka. Líklegt verður að teljast að hröðustu keppendurnir verði ekki mikið lengur
en 18 mínútur að hjóla þessa vegalengd.
Það verður mikið stuð og mikið um að vera á Hrafnagili þar sem keppendur bruna í gegn og snúa við
afleggjaran að Þverbrautinni. Vonandi sjá heimamenn sér fært að koma og fylgjast með en gert er ráð
fyrir fyrstu keppendum inn á Hrafnagil kl. 10:20 og mótinu lokið kl. 12:00

Við fyrir hönd HFA þökkum biðlund og skilning og vonumst eftir að sjá sem flesta hvetja við Hrafnagil.

Fyrir hönd HFA Hörður Finnbogason.