Hvetjum íbúa Eyjafjarðarsveitar til að taka þátt í skemmtilegu verkefni

Aðstandendur Handverkshátíðar hvetja íbúa sveitarinnar til að útbúa fuglahræður og velja þeim stað hér í sveitinni sem sést frá veginum. Fuglahræðurnar mega vera óhefðbundnar og efnisval er frjálst. Í byrjun sumars (dagsetningin kynnt síðar) þurfa þær að fara á stjá og hápunkturinn verður á Handverkshátíðinni þar sem einhverjum þeirra verður boðið inn á svæðið og í lok hátíðar verða verðlaun veitt. Þetta uppátæki munu án efa kæta gesti sveitarinnar líkt og póstkassarnir, traktorinn og kýrnar á Hvassafelli gerðu um árið og tryggir okkur vonandi enn fleiri gesti í ár en síðustu ár.
Með von um góða þátttöku.
Ester Stefánsdóttir
framkvæmdastjóri Handverkshátíðar

Hér má sjá hinar ýmsu útfærslur af fuglahræðum