Íbúafundur 13. mars kl. 20 - Opinn dagur í Eyjafjarðarsveit

Íbúafundur var haldinn mánudaginn 4. mars og þar var ákveðið að sumardaginn fyrsta verði fólki boðið í sveitina. Ætlunin er að lista- og handverksmenn opni vinnustofur sínar, bændur, félagasamtök og ferðaþjónustu¬aðilar kynni starfsemi sína, sumardags¬gleði verði í Funaborg og svo mætti lengi telja. Vegna veðurs komu fáir á fundinn og því er boðað til annars íbúafundar í matsal Hrafnagilsskóla miðvikudaginn 13. mars kl. 20.00. Á fundinum verður rætt um frekari útfærslu á þessari hugmynd og jafnframt um nýja útgáfu á korti um ferðaþjónustu og afþreyingu í Eyjafjarðarsveit. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt og þeir sem vilja kynna starfsemi sína á nýju korti eru hvattir til að mæta, en allir eru velkomnir. Kaffi og með því.
Landbúnaðar- og atvinnumálanefnd