Íbúafundur um sorpmál

Við minnum á kynningarfund um breytt fyrirkomulag á sorphirðu sem haldinn verður í Hrafnagilsskóla, fimmtudagskvöldið 25. ágúst kl. 20. Þar munu fulltrúar frá Gámaþjónustu Norðurlands segja frá innleiðingu á nýju flokkunar- og endurvinnslukerfi. Íbúar eru hvattir til að fjölmenna, fá svör við fyrirspurnum og hafa tækifæri á að koma sínum skoðunum á framfæri.
Umhverfisnefnd

Breytt fyrirkomulag sorphirðu
Frá og með 1. september mun Gámaþjónusta Norðurlands sjá um sorphirðu í Eyjafjarðarsveit. Þá  verður innleitt flokkunarkerfi sem miðar að því að endurvinna það sorp sem hægt er og minnka að sama skapi það sorp sem keyra þarf á urðunarstað. Boðið verður upp á endurvinnslutunnu við sérhvert heimili í sveitinni. Einnig verður gámavöllur norðan við Hrafnagilsskóla þar sem staðsettir verða gámar fyrir flesta flokka úrgang s.s. timbur, málma, garðaúrgang ofl. Opnunartími gámavallar verður auglýstur síðar. Kynningarfundur með nánari upplýsingum fyrir íbúa sveitafélagsins verður haldinn í Hrafnagilsskóla, fimmtudaginn 25. ágúst kl. 20. Íbúar eru hvattir til að fjölmenna, fá svör við þeim spurningum sem upp kunna að vakna og koma sínum sjónarmiðum á framfæri.
Umhverfisnefnd