Íbúafundur um sorpmál

Umhverfisnefnd og sveitarstjórn boða til íbúafundar um sorpmál í sveitarfélaginu mánudagskvöldið 9. janúar kl. 20 í mötuneyti Hrafnagilsskóla. Helgi Pálsson hjá GÞN mætir á fundinn og svarar almennum fyrirspurnum um flokkun, sorphirðu, gámavöll o.fl. Á fundinum fer einnig fram kynnig á nýrri tillögu að gjaldskrá fyrir sorphirðu og gefst íbúum kostur á að koma með athugasemdir. Tillöguna má sjá með ví að smella hér og minnisblað sem fylgir henni með því að smella hér .
Við hvetjum íbúa til að fjölmenna á fundinn og fá svör við þeim spurningum sem upp hafa vaknað í tengslum við sorpmál í sveitarfélaginu á síðustu mánuðum.
Umhverfisnefnd og sveitarstjórn