Karl Frímannsson ráðinn sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar

Á fundi sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar 21. júlí var samþykkt að ráða Karl Frímansson í starf sveitarstjóra Eyjafjarðarsveitar frá 1. ágúst n.k.
Karl hefur langa og farsæla reynslu af stjórnun í opinberum rekstri. Hann var skólastjóri Hrafnagilsskóla í 13 ár og undir hans stjórn hlaut skólinn Íslensku menntaverðlaunin árið 2007. Síðustu tvö árin hefur hann starfað hjá Akureyrarbæ, fyrst sem fræðslustjóri og síðan þróunarstjóri. Karl lauk meistaraprófi frá Háskólanum á Akureyri árið 2010 í stjórnun menntastofnana en áður lauk hann prófi í íþróttafræðum við Íþróttaháskóla Noregs 1992. Hann hefur setið í mörgum stjórnum félaga og stofnana og var nú síðast formaður stjórnar Hofs menningarfélags frá 2008-2012. Síðustu tvö árin hefur hann jafnframt unnið að verkefnum á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga,  kom að gerð kjarasamninga,  hélt námskeið fyrir skólastjórnendur á öllu landinu og sat í skólamálanefnd Sambandsins.