Karl Jónsson ráðinn forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar Eyjafjarðarsveitar

Fréttir
Karl Jónsson
Karl Jónsson

Karl Jónsson hefur verið ráðinn forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar Eyjafjarðarsveitar og tekur hann til starfa 23.janúar 2023.

Karl hefur langa og viðamikla reynslu af stjórnunarstörfum úr eigin rekstri og á að auki að baki ríflega 30 ára þjálfarareynslu í körfubolta þar sem hann hefur unnið með börnum, unglingum og fullorðnum. Karl hefur á undanförnum árum gegnt formennsku í UMF Samherjar og hefur einnig byggt upp körfuboltastarf fyrir krakka í sveitarfélaginu.

Karl þekkir vel til starfsemi sveitarfélagsins og hefur meðal annars verið varafulltrúi í sveitarstjórn og setið í nefndum sveitarstjórnar til ársins 2020. Karl hefur einnig verið formaður ferðamálafélags Eyjafjarðasveitar, setið í stjórn Markaðsstofu Norðurlands og í stjórn Félags ferðaþjónustubænda.

Karl býr yfir mikilli þjónustulund sem hann hefur tileinkað sér á starfsferlinum meðal annars úr eigin rekstri í ferðaþjónustu á Lambinn og í þjálfunarstörfum sínum. Hann hefur mikla reynslu af sölu- og markaðsmálum sem og innkaupastjórn, skipulagningu vakta og mannauðsmálum.