Kolefnisreiknivél Eyjafjarðarsveitar á lausntorgi Sambands Íslenskra sveitarfélaga

Fréttir

Kolefnisreiknivél Eyjafjarðarsveitar er meðal fyrstu lausna á stafrænu lausnatorgi Sambands Íslenskra Sveitarfélaga en reiknivélin var smíðuð að frumkvæði og eftir formúlu umhverfisnefndar sveitarfélagsins. Stefna ehf. sá um uppsetningu reiknivélarinnar en að verkefninu komu einnig Orkustofnun og Skógræktarfélagið, þar sem safna þurfti saman forsendum í útreikningana.

Kolefnisreiknivélin býður upp á að setja inn forsendur á borð við fjölda sauðfjár, fjölda mjólkandi kúa, eldsneytisnotkun og landnýtingu sem gefur útreiknaða áætlaða kolefnislosun á ári.

Reiknivélin var sú fyrsta sinnar tegundar svo best sem sveitarfélagið hefur upplýsingar um og hefur nú verið gerð aðgengileg öðrum sem hana geta nýtt á sameiginlegum vettvangi sveitartfélaganna fyrir stafrænar lausnir.