Kotra, Eyjafjarðarsveit – tillaga að deiliskipulagi fyrir þriðja áfanga íbúðarsvæðis í landi Kotru.

Fréttir Deiliskipulagsauglýsingar

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 7. apríl 2022 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir þriðja áfanga íbúðarsvæðis í landi Kotru í Eyjafjarðarsveit skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagssvæðið er skilgreint sem íbúðarsvæði ÍB13 í gildandi aðalskipulagi sveitarfélagsins og tekur skipulagstillagan til sex nýrra íbúðarlóða auk þess sem fyrri áfangar íbúðarbyggðar í Kotru eru felldir undir hið nýja skipulag.
Skipulagstillagan mun liggja frammi á sveitarskrifstofu Eyjafjarðarsveitar milli 12. apríl og 23. maí 2022 og verður einnig aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins, esveit.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við skipulagstillöguna til mánudagsins 23. maí 2022. Athugasemdir skulu vera skriflegar og skulu berast á sveitarskrifstofu Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9 Hrafnagilshverfi, 605 Akureyri, eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is.

Greinargerð

Deiliskipulag

Skipulags- og byggingarfulltrúi