Kroppur, Eyjafjarðarsveit – kynning skipulagslýsingar vegna aðal- og deiliskipulags fyrir íbúðarsvæði ÍB8

Fréttir Aðalskipulagsauglýsingar

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum 16. júní sl. að vísa skipulagslýsingu vegna breytingar á Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030 og deiliskipulags fyrir fyrsta áfanga íbúðarhverfis í landi Kropps (Ölduhverfi) í kynningarferli skv. 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsverkefnið snýr að aukningu byggingarheimilda á íbúðarsvæði ÍB8 í alls 212 íbúðir og að deiliskipulagningu fyrsta áfanga íbúðarsvæðisins sem telur u.þ.b. 50 íbúðarlóðir.
Skipulagslýsing vegna verkefnisins liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins frá 1. júlí til 12. ágúst 2021 og er auk þess aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins, esveit.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn frestur til fimmtudagsins 12. ágúst 2021 til að gera athugasemdir við skipulagslýsinguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og skulu berast á skrifstofu Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9, Hrafnagilshverfi, 605 Akureyri, eða í tölvupósti á sbe@sbe.is.

Skipulags- og byggingarfulltrúi

 

Hlekkur á skipulagslýsinguna