Leikskólastarfsfólk framtíðarstörf

Fréttir
Krummakot
Krummakot

Vegna aukinnar aðsóknar vill leikskólinn Krummakot í Hrafnagilshverfi ráða starfsfólk í framtíðarstörf.

Um er að ræða 100% stöðu leikskólakennara eða leiðbeinanda og 50% stöðu þroskaþjálfa í stuðning við börn. Í leikskólanum er 100% stöðugildi skipulagt sem 37 klukkustundir á viku.

Leikskólinn er í Hrafnagilshverfi, aðeins tíu kílómetra sunnan Akureyrar. Á Krummakoti eru 65 dásamleg börn sem eru á aldrinum 1 - 6 ára.
Svæðið í kringum skólann er sannkölluð náttúruperla, útikennslusvæðið stórt og gönguleiðir víða. Við leggjum áherslu á jákvæðan aga, söguaðferð (story line) og útikennslu. Starfsmannahópurinn á Krummakoti er öflugur og stendur þétt saman. 

Unnið er að byggingu nýs húsnæðis fyrir leikskólann sem stefnt er á að opna árið 2024 og gefst því færi á að taka þátt í spennandi tímum og mótun starfsins í nýju húsnæði.

VIÐ MAT Á UMSÓKNUM ER HORFT TIL EFTIRFARANDI:
· Leyfisbréf sem leikskólakennari, uppeldismenntun eða önnur menntun
sem nýtist í starfi.
· Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg.
. Framúrskarandi samskiptahæfileikar.
· Metnaður og áhugi til að þróa gott skólastarf.
· Góð íslenskukunnátta.

Frekari upplýsingar veitir Erna Káradóttir leikskólastjóri í síma 464-8120, netfang erna@krummi.is.

Umsóknarfrestur er til 21. desember 2022.

Umsóknum skal fylgja ferilskrá og upplýsingar um meðmælendur.

Umsóknir skal sendist til leikskólastjóra á netfangið erna@krummi.is