Leikskólinn Krummakot í Eyjafjarðarsveit vill ráða starfsfólk – afleysingarstaða vegna fæðingarorlofs

Fréttir

Um er að ræða 100% stöðu leikskólakennara eða starfsmann með aðra háskólamenntun (B.s.,B.a.,B.ed) sem að nýtist í starfi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.

Leikskólinn er í Hrafnagilshverfi, aðeins tíu kílómetra sunnan Akureyrar.

Við mat á umsóknum er horft til eftirfarandi:

  • Leyfisbréf sem leikskólakennari, uppeldismenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Metnaður og áhugi til að þróa gott skólastarf
  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar við börn, foreldra og samstarfsmenn
  • Góð íslenskukunnátta

Sjá nánar á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar www.esveit.is eða http://krummakot.leikskolinn.is/ .

Frekari upplýsingar veitir Erna Káradóttir leikskólastjóri í síma 464-8120, netfang erna@krummi.is.

Umsóknarfrestur er til og með 10.des 2021. Umsóknum skal fylgja ferilskrá og upplýsingar um meðmælendur. Umsóknir skal senda til leikskólastjóra á netfangið erna@krummi.is