Leikskólinn Krummakot í Eyjafjarðarsveit vill ráða starfsfólk - framtíðarstarf

Um er að ræða stöður deildarstjóra, 100% og sérkennslustjóra, 30%.

Leikskólinn er staðsettur í Hrafnagilshverfinu, aðeins tíu kílómetra sunnan Akureyrar, í umhverfi sem hefur upp á einstaka möguleika að bjóða til útináms og hreyfingar. Deildir eru þrjár og nemendur rúmlega 60 á aldrinum eins til sex ára. Unnið er í samræmi við uppeldisstefnu Jákvæðs aga og markvisst unnið með málrækt og læsi, dygðir, umhverfisstarf, hreyfingu og tónlist.

Við mat á umsóknum er horft til eftirfarandi:

  • Leyfisbréf sem leikskólakennari eða önnur uppeldismenntun sem nýtist í starfi
  • Viðbótarmenntun í stjórnun og/eða sérkennslufræðum
  • Reynsla af stjórnunar-, uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Metnaður og áhugi til að þróa gott skólastarf
  •  Lipurð í samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Félags leikskólakennara og Launanefndar sveitarfélaga.

Krummakot vinnur markvisst að því að jafna stöðu kynjanna á vinnustaðnum og hvetur karla jafnt sem konur að sækja um starfið. Það er til samræmis við jafnréttislög no. 10/2008.

Frekari upplýsingar veitir Hugrún Sigmundsdóttir leikskólastjóri í síma 464-8120, netfang hugruns@krummi.is. Umsóknarfrestur er til og með 24. maí 2017.

Umsóknum skal fylgja ferilskrá og upplýsingar um meðmælendur. Umsóknir skal senda til leikskólastjóra á netfangið hugruns@krummi.is