Leikskólinn Krummakot í Eyjafjarðarsveit vill ráða starfsfólk - framtíðarstarf

Um er að ræða 100% stöður deildarstjóra/leikskólakennara/leiðbeinanda

Leikskólakennari, leikskólaliði eða starfsmaður með aðra menntun sem nýtist í starfi og/eða reynslu af vinnu með ungum börnum óskast til starfa í leikskólann Krummakot.

Leikskólinn er í Hrafnagilshverfi, aðeins tíu kílómetra sunnan Akureyrar.

Við mat á umsóknum er horft til eftirfarandi:

  • Leyfisbréf sem leikskólakennari, uppeldismenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Metnaður og áhugi til að þróa gott skólastarf
  • Lipurð í samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar veitir Erna Káradóttir leikskólastjóri í síma 464-8120, netfang erna@krummi.is.

Umsóknarfrestur er til og með 1. ágúst 2018. Umsóknum skal fylgja ferilskrá og upplýsingar um meðmælendur. Umsóknir skal senda til leikskólastjóra á netfangið erna@krummi.is