LEIKSKÓLINN KRUMMAKOT Í EYJAFJARÐARSVEIT VILL RÁÐA STARFSFÓLK - FRAMTÍÐARSTARF

Fréttir

Leikskólakennari, leikskólaliði eða starfsmaður með aðra menntun sem nýtist í starfi og/eða reynslu af vinnu með ungum börnum óskast til starfa í leikskólanum Krummakoti.
Um er að ræða 100% stöðu leikskólakennara/leiðbeinanda.

Leikskólinn er í Hrafnagilshverfi, aðeins tíu kílómetra sunnan Akureyrar.
Á Krummakoti eru 65 dásamleg börn sem eru á aldrinum 1 - 6 ára. Svæðið í kringum skólann er sannkölluð náttúruperla, útikennslusvæðið stórt og gönguleiðir víða. Við leggjum áherslu á jákvæðan aga, söguaðferð (story line) og útikennslu. Starfsmannahópurinn á Krummakoti er öflugur og stendur þétt saman.

VIÐ MAT Á UMSÓKNUM ER HORFT TIL EFTIRFARANDI:
· Leyfisbréf sem leikskólakennari, uppeldismenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
· Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg.
. Framúrskarandi samskiptahæfileikar.
· Metnaður og áhugi til að þróa gott skólastarf.
· Góð íslenskukunnátta.

Frekari upplýsingar veitir Erna Káradóttir leikskólastjóri í síma 464 8120, netfang erna@krummi.is.

Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2022.

Umsóknum skal fylgja ferilskrá og upplýsingar um meðmælendur.
Umsóknir skal sendist til leikskólastjóra á netfangið erna@krummi.is