Miðvikudaginn 7. október 2020 verður Forvarnardagurinn haldinn í 15 sinn í grunnskólum landsins og í tíunda sinn í framhaldsskólum

Fréttir

Forvarnardagurinn er haldinn að frumkvæði forseta Íslands. Aðrir samstarfsaðilar að Forvarnardeginum eru Embætti landlæknis, sem sér um verkefnisstjórn dagsins, Samband íslenskra sveitarfélaga, Reykjavíkurborg, Samfés, Heimili og skóli – landsamtök foreldra, Ungmennafélag Íslands, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Skátar, Rannsóknir og greining og SAFF – Samstarf félagasamtaka í forvörnum.

Forvarnardagurinn er haldinn á hverju hausti í því sem næst öllum grunnskólum landsins og er beint sérstaklega að nemendum í 9. bekk og á 1. ári í framhaldsskólum. Á Forvarnardaginn ræða nemendur um hugmyndir sínar og tillögur um samverustundir með fjölskyldu og æskulýðs- og íþróttastarf, en þetta eru á meðal verndandi þátta gegn áfengi- og vímuefnum.

Markmið Forvarnardagsins er að vekja athygli á mikilvægum þáttum í forvarnarstarfi sem snúa að ungu fólki. Á heimasíðu Forvarnardagsins er meðal annars að finna fróðleik og myndbönd um forvarnir www.forvarnardagur.is

Allir sem koma að málefnum barna og ungmenna á einn eða annan hátt eru hvattir til halda forvarnardeginum á lofti og fylgjast vel með starfsemi grunn- og framhaldsskóla þennan dag með áherslu á fyrrgreinda árganga. Til dæmis með því að virkja fjölmiðla á svæðinu. Grunn- og framhaldsskólar eru sérstaklega hvattir til að finna leiðir til að leyfa fulltrúum nærsamfélagsins að fylgjast með verkefnum dagsins.

Höfum í huga að forvarnir er viðvarandi verkefni sem snýr bæði að almenningi og þeim sem bera ábyrgð á samfélagslegum ákvörðunum og stefnumörkun. Minnumst þess hversu góðum árangri hefur verið náð. Sem dæmi má nefna að fyrir rúmum 20 árum sögðust 42% nemenda í 10. bekk hafa neytt áfengis síðustu 30 daga en árið 2020 var talan komin í 7% (sjá meðfylgjandi mynd) og árið 2018 höfðu 46% nemenda í framhaldsskólum aldrei orðið ölvaðir. Á vef Embætti landlæknis er að finna staðreyndablað um forvarnir í skólum sem vert er að vinna með þegar kemur að forvörnum.

Fyrir hönd samstarfsaðila Forvarnardagsins og með von um jákvæðar undirtektir,
Klara E. Finnbogaóttir, Samband íslenskra sveitarfélaga
Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir, verkefnisstjóri Forvarnardagsins 2019