Nafni Reykárhverfis breytt í Hrafnagilshverfi

Á fundi sveitarstjórnar 7. febrúar var tillaga skipulagsnefndar um að heiti Reykárhverfis verði breytt i Hrafnagilshverfi samþykkt.

Bókun skipulagsnefndar frá 2. febrúar er eftirfarandi:

„Fjallað var um niðurstöður skoðanakönnunar. Þátttaka var lítil en mikill meirihluti þeirra sem tóku afstöðu lýstu stuðningi við að breyta nafni Reykárhverfis í Hrafnagilshverfi.
Erfitt hefur verið að vinna nafni Reykárhverfis sess og gerir skipulagsnefnd það að tillögu sinni að nafni hverfisins verði breytt í Hrafnagilshverfi.”

 Niðurstöður skoðanakönnunarinnar má sjá hér .