Skrifstofa Eyjafjarðarsveitar lokuð næstu daga

Fréttir

Skrifstofa Eyjafjarðarsveitar verður lokuð næstu daga þar sem smit hefur komið upp hjá einstaklingi í starfsmannahóp skrifstofunnar. Þó aðrir séu einkennalausir er brugðist við samkvæmt tilmælum og verður skrifstofan því lokuð þar til rakningarteymi hefur lokið vinnu sinni.
Miðað við þær upplýsingar sem liggja fyrir er talið að búið sé að hafa samband við þá einstaklinga sem mögulega gætu verið útsettir fyrir smiti en rakningu er þó ekki lokið.