Söfnun birkifræja

Á síðustu árum hefur almenningur safnað birkifræi fyrir Hekluskóga og lagt drjúgan skerf að því mikilvæga verkefni. Heldur minna er af birkifræi þetta haustið en undanfarin ár. Þó má víða finna allmörg tré með fræi. Eftir gott haust er fræið víða enn á birkitrjánum og því er kjörið að safna því þessa síðustu daga í október. Hægt er að skila fræjum til Ingólfs Jóhannssonar hjá Skógrækt ríkisins í Kjarnaskógi til mánaðamóta.
Sjá nánar um verkefnið á http://www.skogur.is/um-skograekt-rikisins/frettir/nr/2283.
Umhverfisnefnd Eyjafjarðarsveitar