Sóknaráætlun Norðurlands eystra 2020-2024

Fréttir

Ný sóknaráætlun Norðurlands eystra fyrir árin 2020-2024 var kynnt og samþykkt samhljóða á aðalfundi Eyþings sem haldinn var í Dalvíkurbyggð 15.-16. nóvember sl. Í ljósi góðrar reynslu fyrri sóknaráætlana Norðurlands eystra, frá árunum 2013-2019, var ákveðið að ráðast í vinnu við nýja sóknaráætlun til næstu fimm ára. Þann 12. nóvember 2019 var undirritaður samningur milli samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins, mennta- og menningarmálaráðuneytisins annars vegar og Eyþings hins vegar um sóknaráætlun Norðurlands eystra 2020-2024. Markmið samningsins er að stuðla að jákvæðri byggðaþróun í takt við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun, treysta stoðir menningar og auka samkeppnishæfni landshlutans og landsins alls. 

 

Í maí 2019 samþykkti stjórn Eyþings að fara í samstarf við Capacent um gerð nýrrar sóknaráætlunar Norðurlands eystra 2020-2024. Ráðgjafar Capacent héldu utan um vinnuferlið ásamt því að stýra fulltrúaráðs- og íbúafundi sem haldnir voru vegna verkefnisins. Ferlið sem sett var upp miðaði að því að meta stöðu landshlutans og móta framtíðarsýn ásamt því að skilgreina megin- og mælanleg markmið í atvinnu- og nýsköpunarmálum, menningarmálum og umhverfismálum. Sóknaráætlunin var unnin í samráði við íbúa svæðisins, kjörna fulltrúa, stjórnendur og starfsmenn Eyþings. Samhliða voru drög nýrrar sóknaráætlunar sett inn á samráðsgátt stjórnvalda í þeim tilgangi að sem flestir gætu komið skoðunum sínum á framfæri.

 

Sóknaráætlun er stefnuskjal sem felur í sér stöðumat landshlutans, framtíðarsýn og markmið í tilgreindum málaflokkum ásamt skilgreindum leiðum að markmiðunum. Til að vinna að markmiðum samningsins mun Eyþing: 

  • Móta sóknaráætlun Norðurlands eystra sem nær yfir árin 2020-2024.
  • Annast umsýslu Uppbyggingarsjóðs Norðurlands eystra sem styður við markmið sóknaráætlunar.
  • Skilgreina áhersluverkefni sem endurspegla markmið sóknaráætlunar Norðurlands eystra og styðja við framgang hennar.

 

Sóknaráætlun Norðurlands eystra 2020-2024 er að finna hér.