Spunanámskeið

Spunanámskeið verða haldin 2x2 miðvikudagskvöld frá 8.-29. febrúar.
Í litlu rauðu húsi við Dyngjuna er spunninn þráður lífsins úr reyfi frá kind nágrannans við kertaljós á köldum vetrarkvöldum. Fyrstu tvö skiptin er kennt að spinna þráð frá reifi, kemba með handkömbum, spunnið á snældu og seinni tvö kvöldin er kennt að spinna á rokk. Lummur og ketilkaffi á heitri kamínu.
Dyngjan-listhús er við fjallsrætur Kerlingar í landi Fífilbrekku Eyjafjarðarsveit. Upplýsingar í síma 899-8770 og hadda@simnet.is