Sveitarstjórn bókar um launaþróun í bankakerfinu

„Eyjafjarðarsveit hefur allt frá upphafi  haft  bankaviðskipti sín við Arionbanka.  Sveitarfélagið hefur allan þann tíma átt mjög  góð og ánægjuleg samskipti við starfsfólk bankans á Akureyri. „Eyjafjarðarsveit hefur allt frá upphafi  haft  bankaviðskipti sín við Arionbanka.  Sveitarfélagið hefur allan þann tíma átt mjög  góð og ánægjuleg samskipti við starfsfólk bankans á Akureyri.  
Á undanförnum vikum hafa borist fréttir af launakjörum bankastjóra  sem  í sumum tilfellum eru með þeim hætti  að vekur undrun.  Það er að mati sveitarstjórnar algerlega ólíðandi að á sama tíma og almenningur,   fyrirtæki  og stofnanir í landinu berjast við að ná endum saman skuli svona launagreiðslur tíðkast.  Vegna þessara  frétta   samþykkir sveitarstjórn  að  fela sveitarstjóra og skrifstofustjóra  að   leggja mat á kosti og galla þess að Eyjafjarðarsveit skipti  um viðskiptabanka.“