Sveitarstjórnarkosningar í Eyjafjarðarsveit 2018

Kjörstaður í Eyjafjarðarsveit verður í Hrafnagilsskóla laugardaginn 26. maí. Kjörfundur hefst kl. 10:00 og honum lýkur kl. 22:00.

Þeim sem eiga erfitt með gang er heimilt að aka út að skóla.

Á kjörstað gerir kjósandi grein fyrir sér með framvísun skilríkja eða á annan fullnægjandi hátt. Atkvæði verða talin á kjörstað eftir að kosningu lýkur. Á kjördegi hefur kjörstjórn aðsetur í Hrafnagilsskóla, sími 464-8100 eða 899-4935.

Kjörstjórnin í Eyjafjarðarsveit: Emilía Baldursdóttir, Ólafur Vagnsson, Níels Helgason.