Umferðarteljari við hjóla- og göngustíg

Starfsmenn Eyjafjarðarsveitar, Skógræktarfélags Eyfirðinga og Þverárgolfs hafa útbúið lítið útskot við hjóla- og göngustíginn þar sem komið hefur verið fyrir bekk og umferðarteljara.

Hjóla- og göngustígurinn frá Hrafnagilshverfi að Kjarnaskógi hefur notið mikilla vinsælda frá lagningu hans síðasta sumar og er þessum áningarstað fagnað og verður áhugavert að sjá tölur úr umferðarteljaranum í framtíðinni.

Starfsmenn Eyjafjarðarsveitar, Skógræktarfélags Eyfirðinga og Þverárgolfs