Umhverfisverðlaun Eyjafjarðarsveitar veitt

Fréttir
Verðlaunahafar umhverfisverðlauna Eyjafjarðarsveitar 2019 ásamt umhverfisnefnd
Verðlaunahafar umhverfisverðlauna Eyjafjarðarsveitar 2019 ásamt umhverfisnefnd

Rétt í þessu voru umhverfisverðlaun Eyjafjarðarsveitar veitt af umhverfisnefnd sem ákvað að veita tveimur aðilum verðlaunin í ár, annarsvegar fyrir Bújörð og atvinnustarfsemi og hinsvegar fyrir íbúðarhús og nærumhverfi. 

Til að leggja mat á það hverjir ættu að fá umhverfisverlaun 2019 fór umhverfisnefnd vettvangsferð um sveitarfélagið og gerði sér ferð að hverju húsi.

 

Eftirfarandi aðilar hlutu umhverfisverðlaun Eyjafjarðarsveitar 2019 og óskar sveitarfélagið þeim til hamingju með verðskuldaðar viðurkenningar á umhverfi sínu og þakkar þeim fyrir að leggja mark sitt á að halda sveitarfélaginu snyrtilegu. 

 

Bújörð/atvinnustarfsemi: Litli Garður, Hrossarækt og tamningastöð - Herdís Ármannsdóttir og Stefán Birgir Stefánsson. 

Falleg ástýnd er að bænum þar sem tún og bæjarhús eru afmörkuð með trjágóðri. Almenn góð umgengni er á svæðini, nýlega máluð útihús og íbúðarhús í stíl.

 

Íbúðarhús og nærumhverfi: Festaklettur - Nína Þórðardóttir og Tómas Ingi Olrich.

Reisulegt íbúðarhús með fallegri verönd og vel hirtum beðum í kring. Húsið og nærumhverfi þess er í skjóli fjölbreytts trjágróðurs, heimreið afar smekkleg og aðkoma að húsinu til fyrirmyndar.