Ítrekað er að umsóknum í afreksmannasjóð UMSE þarf að skila fyrir 1. desember n.k.

Umsóknir um styrk úr sjóðnum skulu berast fyrir 1. desember og fer úthlutun fram 15. desember.

Réttur til styrkveitinga úr sjóðnum er eftirfarandi samkvæmt reglugerð sjóðsins:

6. grein.
Úthlutun úr Afreksmannasjóði skiptist í A og B flokk.

-A flokkur. Rétt til styrkveitinga eiga þeir sem skara fram úr í íþróttagrein sini t.a.m. eru í landsliði, sigra á Íslandsmeistaramóti, setja Íslandsmet eða á annan hátt sýna að þeir eru afreksmenn í íþróttum.

-B flokkur. Styrkveiting til íþróttafólks sem sýnir stórstígar framfarir í grein sinni. Æfinga og ferðastyrkir til efnilegra íþróttamanna.

7. grein.
Til að hljóta styrk þurfa viðkomandi íþróttamenn eða félög þeirra að sækja skriflega um til sjóðsstjórnar og jafnframt að gera grein fyrir ástæðum umsóknarinnar Einnig getur sjóðsstjórn veitt styrk til einstaklinga eða hóps þó ekki liggi fyrir skrifleg umsókn viðkomandi, telji hún það samkvæmt reglum og anda sjóðsins.


Beinn tengill á reglugerð sjóðsins er:
http://www.umse.is/reglugerdhir/afreksmannasjodhur-umse

Umsóknir í sjóðinn berist skirfstofu UMSE, Búgarði, Óseyri 2, 603 Akureyri eða í tölvupósti á umse@umse.is