Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra auglýsir eftir umsóknum fyrir árið 2020.

Fréttir

Hlutverk sjóðsins er að styrkja menningar-, atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni. Auk þess veitir sjóðurinn stofn- og rekstrarstyrki til menningarmála.

Uppbyggingarsjóður er samkeppnissjóður og miðast styrkveitingar við árið 2020.

Opnað verður fyrir umsóknir kl. 12:00, 7. október.

Umsóknarfrestur er til og með kl. 12:00 7. nóvember.

Sótt er um á rafrænni umsóknargátt sem er á heimasíðu Eyþings www.eything.is

Starfsmenn Eyþings og atvinnuþróunarfélaganna verða með viðveru á starfssvæðinu þar sem veitt verður ráðgjöf við gerð umsókna. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðum Eyþings og atvinnuþróunarfélaganna.

 

FREKARI UPPLÝSINGAR VEITA:

Ari Páll Pálsson aripall@atthing.is sími 464 0416

Baldvin Valdemarsson baldvin@afe.is sími 460 5701

Vigdís Rún Jónsdóttir vigdis@eything.is sími 464 9935