Uppskera og handverk 2007 - umsóknarfrestur 31.maí

Dagana 10. - 12. ágúst 2007 verður okkar árlega Handverkshátíð haldin. Fáir viðburður eiga sér jafnlangan feril.

Í fyrra tók sýningin sem þá fékk nafnið “Uppskera og handverk 2006” heilmiklum breytingum og vakti það athygli. Hún varð að skemmtilegri blöndu handverks- og fjölskylduhátíðar þar sem allir fundu eitthvað við sitt hæfi. Sýningarsvæðið tvöfaldaðist og var breytingum vel tekið af sýnendum sem og gestum hátíðarinnar. Dæmi voru um að gestir komu alla daga hátíðarinnar þar sem eitthvað nýtt var að gerast dag hvern. Mjög gott samstarf var haft við Fiskidaginn mikla sem er einmitt haldinn sömu helgi ár hvert. Nú verður gengið skrefinu lengra og ýmsar nýjungar þróaðar enn frekar. Mikilvægt er að byggja upp sölusýningu á listmunum á landsbyggðinni, skapa gott orðspor bæði hátíðar og sveitar, og höfða til allra þeirra innlendu og erlendu ferðamanna sem eru á faraldsfæti þessa helgi á Norðurlandi.

Myndir frá hátíðinni 2006  

Svo vel eigi að vera þarf virka þátttöku fólks á sviði lista, gæðahandverks og hönnunar. Því hefur verið skipuð sérstök valnefnd sem leggur mat á umsóknir og velur þátttakendur inn á hvert svæði fyrir sig. Valnefndina skipa : Anna Gunnarsdóttir, Guðmundur Ármann Sigurjónsson, Sigríður Örvarsdóttir og George Hollanders.

Nýjungar :

  • Umsækjendur geta nú valið milli þess að sækja um sölubás á 600 fm sýningarsvæði, taka þátt í stóru verksvæði/workshop eða senda muni sína í Krambúðina.
  • Svokallað verksvæði vakti gífurlega athygli í fyrra og mikið af verkum voru unnin á hátíðinni. Meðal annars var 500 kílóa risi í smíðum, rafmagnsgítar í stærðinni 4 metrar, rennismiðir að störfum, vinnsla á hornum, leirlistarkona, vefnaður, hnífasmíði og fleira og fleira. Verksvæðið verður ekki minna fjölbreytt í ár.
  • Krambúðvar rekin af hálfu sýningarinnar þar sem aðilar sendu listmuni sína í sérstaka listmunabúð á aðalsýningarsvæðinu. Mikil ánægja var með þetta og fjöldi listamanna sendu muni sína. Umsjónaraðili að þessu sinni er Sigríður Örvarsdóttir textílhönnuður og sér hún um uppsetningu og val á munum inn í Krambúðina.
  • Handverksmaður ársinsvar valinn í fyrsta skipti á hátíðinni 2006 og hlaut Ranka í kotinu eins og Ragnhildur Magnúsdóttir í Gýgjarhólskoti er kölluð þennan titil fyrir árið 2006. Spennandi verður að sjá hver verður fyrir valinu fyrir árið 2007.

Þema :

Árið 2007 er þema hátíðarinnar “kornið” og er nú unnið markvisst í samvinnu við Landsamband kornbænda og Búgarð að uppbyggingu kynningarsvæðis sem verður einkennandi fyrir þemað. Íslensk afbrigði korns verða ræktuð á sýningarsvæðinu sjálfu ásamt því að unnið verður úr alíslensku hveiti, heilhveiti og byggi. Unnið verður með hálm á sérstökum þemabásum þar sem sýndar verða hálmfléttingar og fleira. Leitað er að einstaklingum sem vinna á einhvern hátt með korn, hálm, hör og þess háttar, til dæmis við vefnað, fléttingar og textíl. Allar ábendingar eru vel þegnar.

Þátttakendur :

Hönnuðum, handverks- og listiðnaðarfólki er boðin þátttaka í sýningunni og skulu sækja um á þar til gerðu umsóknarformi. Þetta má nálgast á heimasíðu www.handverkshatid.is og í síma 864-3633.

Námskeið :

Sem fyrr verða nokkur námskeið haldin í tengslum við hátíðina og bæði erlendir og innlendir listamenn fengnir til leiðbeiningar.

Fyrirhuguð námskeið :

  • Þæfing - Leiðbeinandi er Valborg Mortensen
  • Leðursaumur – Leiðbeinandi er Anna Gunnarsdóttir
  • Hálmfléttingar – Leiðbeinandi er Doris Gustafsson
  • Eldsmíði – Leiðbeinandi er Beate Stormo

Umsóknarfrestur er 31. maí næstkomandi og allar nánari upplýsingar gefur Dóra í síma 864-3633.