Útboð - Hrafnagilsskóli viðbygging fyrsti áfangi

Fréttir
Útboð viðbyggignar við Hrafnagilsskóla
Útboð viðbyggignar við Hrafnagilsskóla

Eyjafjarðarsveit óskar eftir tilboðum í fyrsta áfanga viðbyggingar við Hrafnagilsskóla. Um er að ræða steypu sökkla og botnplötu ásamt lagnavinnu.

Helstu magntölur í verkinu eru:

  • Undirstöðu- og veggjamót um 850 m2
  • Bendistál um 15.500 kg
  • Steypa um 320 m³
  • Einangrun sökkulveggja um 300 m2
  • Einangrun botnplötu um 850 m2
  • Jarðvatnslagnir um 155 m
  • Frárennslislagnir um 200 m
  • Gólfhitalagnir í botnplötu um 4900 m

Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 15. ágúst 2022.

 

Útboðsgögn verða afhent rafrænt frá og með mánudeginum 14.febrúar 2022. Beiðni um afhendingu gagna skal send í tölvupósti á netfangið rab@verkis.is

Tilboðin verða opnuð á skrifstofu VERKÍS að Austursíðu 2, 603 Akureyri þann 3. mars 2022 klukkan 11.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

 

Frétt hefur verið uppfærð.