Úthlutað er úr Afreksmannasjóði UMSE, 15. desember n.k.

Umsóknarfrestur i sjóðinn skulu berast skrifstofu UMSE fyrir 1. desember. Tilgangur sjóðsins er að styrkja eyfirska afreksmenn til æfinga og keppni. Stjórn sjóðsins er stjórn UMSE og sér hún um úthlutun.

Úthlutun úr Afreksmannasjóði skiptist í A og B flokk.
Í A flokki hafa þeir rétt til styrkveitinga sem skara fram úr í íþróttagrein sinni t.a.m. eru í landsliði, sigra á Íslandsmeistaramóti, setja Íslandsmet eða á annan hátt sýna að þeir eru afreksmenn í íþróttum.
Í B flokki eru styrkveitingar til íþróttafólks sem sýnir stórstígar framfarir í grein sinni. Um er að ræða æfinga og ferðastyrkir til efnilegra íþróttamanna.

Til að hljóta styrk þurfa viðkomandi íþróttamenn eða félög þeirra að sækja skriflega um til sjóðsstjórnar og jafnframt að gera grein fyrir ástæðum umsóknarinnar. Einnig getur sjóðsstjórn veitt styrk til einstaklinga eða hóps þó ekki liggi fyrir skrifleg umsókn viðkomandi, telji hún það samkvæmt reglum og anda sjóðsins.

Nánar um reglur sjóðins er að finna á heimasíðu UMSE: www.umse.is