Viðmiðunardagur kjörskrár vegna sveitarstjórnarkosninganna

Laugardagurinn 10. maí 2014 er viðmiðunardagur kjörskrár vegna sveitarstjórnarkosninganna sem hafa verið auglýstar þann 31. maí n.k., sjá nánar.

Kosningarétt við sveitarstjórnarkosningarnar 31. maí 2014 eiga allir íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag og sem skráðir eru með lögheimili í viðkomandi sveitarfélagi þremur vikum fyrir kjördag, 10. maí 2014.
Einnig eiga kosningarétt danskir, finnskir, norskir og sænskir ríkisborgarar sem átt hafa lögheimili hér á landi í þrjú ár samfellt fyrir kjördag, sem og aðrir erlendir ríkisborgarar sem átt hafa lögheimili hér á landi í fimm ár samfellt fyrir kjördag, enda hafi þeir náð 18 ára aldri á kjördag og eiga skráð lögheimili í viðkomandi sveitarfélagi þremur vikum fyrir kjördag, 10. maí 2014.

Íslenskir ríkisborgarar sem stunda nám á hinum Norðurlöndunum, og sem þurft hafa að flytja lögheimili sitt þangað vegna ákvæða samnings Norðurlandanna um almannaskráningu, glata ekki kosningarétti sínum vegna þess.

Þjóðskrá Íslands vill af þessu tilefni minna á nauðsyn þess að íbúaskráningin sé sem réttust. Flutningur á lögheimili á milli sveitarfélaga og innan sveitarfélags, sem á sér stað eftir 10. maí 2014 mun ekki hafa áhrif á útgefinn kjörskrárstofn. Þetta þýðir að tilkynningar um lögheimilisbreytingar þurfa að berast okkur í síðasta lagi 9. maí eigi þær breytingar að verða skráðar í þjóðskrá fyrir viðmiðunardag.

Vinsamlegast upplýsið viðeigandi aðila hjá ykkar sveitarfélagi.