Vinnufundaröð Markaðsstofu Norðurlands

Fréttir

Í lok mars og byrjun apríl, verður vinnufundaröð Markaðsstofu Norðurlands um allt Norðurland. Tilgangur fundanna er að efla samstarf á milli ferðaþjónustuaðila og útbúa hugmyndir að pökkum til þess að ýta undir ferðaþjónustu á svæðinu allan ársins hring. Auk þess verður rætt um þau áhrif sem reglulegt millilandaflug getur haft og möguleikana sem því fylgir. Að lokum verður farið í grunnatriði markaðssetningar á samfélagsmiðlum og hvað hafa þarf í huga við notkun þeirra.

Þessir fundir hafa í tvígang verið auglýstir áður en vegna Covid-19 heimsfaraldurs þurfti að fresta þeim í bæði skipti.

Fundirnir verða á eftirtöldum stöðum og tímum. Nánari staðsetningar verða auglýstar í tölvupósti til þeirra sem hafa skráð sig, í lok vikunnar.

mars, kl. 10:00 – 12:00 á Akureyri
28. mars, kl. 14:00 – 16:00 í Mývatnssveit
mars, kl. 10:00 – 12:00 á Húsavík
29. mars, kl. 17:00 – 19:00 á Þórshöfn
apríl, kl. 10:00 – 12:00 á Sauðárkróki
4. apríl, kl. 17:00 – 19:00 á Hvammstanga
apríl, kl. 15:00-17:00 á Ólafsfirði
apríl, kl. 16:30 – 18:30 á Skagaströnd

Smelltu hér til að skrá þig á fund.

Við hlökkum svo til að sjá ykkur sem flest á Mannamótum á fimmtudag!