Brúarland, Eyjafjarðarsveit – auglýsing skipulagslýsingar

Fréttir Deiliskipulagsauglýsingar

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 27. janúar sl. að vísa skipulagslýsingu fyrir fyrirhugaða íbúðarbyggð í landi Brúarlands í kynningarferli skv. 1. mgr. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsverkefnið lýtur að 13 nýjum íbúðarlóðum á svæði sem auðkennt er ÍB15 í Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030. Í áformunum felst einnig að deiliskipulag fyrir fimm íbúðarlóðir á sama svæði, sem öðlaðist gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda 27. ágúst 2015, falli úr gildi við gildistöku hins nýja deiliskipulags.
Skipulagslýsingin er aðgengileg á sveitarskrifstofu Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9 Hrafnagilshverfi, milli 31. janúar og 14. febrúar 2022 sem og á heimasíðu sveitarfélagsins, esveit.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma athugasemdum á framfæri til mánudagsins 14. febrúar 2022. Athugasemdir skulu vera skriflegar og skulu berast til Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9 Hrafnagilshverfi, 605 Akureyri, eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is.

Skipulagslýsing

Skipulags- og byggingarfulltrúi