Kotra, Eyjafjarðarsveit – tillaga að deiliskipulagi fyrir annan áfanga íbúðarsvæðis í landi Kotru

Fréttir Deiliskipulagsauglýsingar

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 26. mars 2020 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir annan áfanga íbúðarsvæðis í landi Kotru í Eyjafjarðarsveit skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagssvæðið er rúmir 6 ha að flatarmáli og er í gildandi aðalskipulagi sveitarfélagsins skilgreint sem íbúðarsvæði ÍB13. Skipulagssvæðið afmarkast af lóð gistiheimilisins Hafdals hotel í vestri, landamerkjum Ytri-Varðgjár í norðri og skipulagsmörkum fyrri áfanga íbúðarsvæðis ÍB13 í suðri.
Skipulagstillagan mun liggja frammi á sveitarskrifstofu Eyjafjarðarsveitar milli 30. mars og 11. maí 2020 og verður einnig aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við skipulagstillöguna til mánudagsins 11. maí 2020. Athugasemdir skulu vera skriflegar og skulu berast á sveitarskrifstofu Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9 Hrafnagilshverfi, 605 Akureyri, eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is.

Kotra áfangi 2 - greinargerð

Skipulags- og byggingarfulltrúi