Kotra, Eyjafjarðarsveit – tillaga að deiliskipulagi fyrir þriðja áfanga íbúðarsvæðis í landi Kotru.

Deiliskipulagsauglýsingar

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 14. janúar 2021 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir þriðja áfanga íbúðarsvæðis í landi Kotru í Eyjafjarðarsveit skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagssvæðið er skilgreint sem íbúðarsvæði ÍB13 í gildandi aðalskipulagi sveitarfélagsins og tekur skipulagstillagan til sex nýrra íbúðarlóða auk þess sem fyrri áfangar íbúðarbyggðar í Kotru eru felldir undir hið nýja skipulag.
Skipulagstillagan mun liggja frammi á sveitarskrifstofu Eyjafjarðarsveitar milli 4. febrúar og 18. mars 2021 og verður einnig aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins, esveit.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við skipulagstillöguna til fimmtudagsins 18. mars 2021. Athugasemdir skulu vera skriflegar og skulu berast á sveitarskrifstofu Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9 Hrafnagilshverfi, 605 Akureyri, eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is.

Kotra greinargerð

Kotra uppdráttur

Skipulags- og byggingarfulltrúi