Leifsstaðabrúnir, Eyjafjarðarsveit – auglýsing deiliskipulagstillögu

Fréttir Deiliskipulagsauglýsingar

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum 4. febrúar 2021 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi íbúðarsvæðis í Leifsstaðabrúnum skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagið tekur til þriggja íbúðarhúsalóða á svæði sem auðkennt er íbúðarsvæði ÍB16 í gildandi aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Skipulagstillagan liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins frá 18. febrúar til 1. apríl 2021 og er auk þess aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins, esveit.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn frestur til fimmtudagsins 1. apríl 2021 til að gera athugasemdir við skipulagstillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og skulu berast á skrifstofu Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9, Hrafnagilshverfi, 605 Akureyri, eða í tölvupósti á sbe@sbe.is.

Uppdráttur

Skipulags- og byggingarfulltrúi