Stokkahlaðir, Eyjafjarðarsveit – auglýsing deiliskipulagstillögu

Fréttir Deiliskipulagsauglýsingar

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum 3. júní 2021 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir athafnasvæði í landi Stokkahlaða skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagið tekur til tveggja atvinnuhúsa á svæði sem auðkennt er athafnasvæði AT4 í gildandi aðalskipulagi sveitarfélagsins.

Skipulagstillagan liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins frá 14. júní til 26. júlí 2021 og er auk þess aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins, esveit.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn frestur til mánudagsins 26. júlí 2021 til að gera athugasemdir við skipulagstillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og skulu berast á skrifstofu Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9, Hrafnagilshverfi, 605 Akureyri, eða í tölvupósti á sbe@sbe.is.

Greinargerð og skipulagsskilmálar

Skipulags- og byggingarfulltrúi