Kvenfélagið Iðunn – Vorfundur í Laugarborg

Vorfundurinn okkar verður haldinn laugardaginn 9. maí kl. 10:30 í Laugarborg. Bröns, kaffi og kruðerý á boðstólum.
Fundarboð ásamt dagskrá hefur verið send félagskonum í tölvupósti og er á leiðinni í sniglapósti. Skráning óskast á idunn@kvenfelag.is í síðasta lagi 2. maí eða í síma 866-2796 (Hrönn).
Nýjar konur velkomnar – muna að skrá sig :-)

Mætum hressar og sem flestar. Minnum á happdrættið, 1.000 kr.
Vorkveðjur, stjórnin.