Farsæld barna

Börn og foreldrar sem á þurfa að halda eiga að hafa aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana. Samþætt þjónustu í þágu farsældar barns er skipulögð og samfelld og hefur það markmið að skapa heildarsýn og ramma um þau þjónustukerfi sem skipta mestu máli fyrir farsæld barna. Hér er kynningarmyndband um farsældarlögin.

Tengiliður: Öll börn og foreldrar skulu hafa aðgang að tengilið þjónustu í þágu farsældar barns eftir því sem þörf krefur. Hlutverk tengiliðar er fyrst og fremst að veita upplýsingar, aðstoða foreldra og barn og styðja við samþættingu á fyrsta stigi í samræmi við óskir foreldra og/eða barns. Foreldrar og börn geta leitað sjálf beint til tengiliðar.

Upplýsingar um tengiliði

Hrafnagilsskóli

Þorbjörg Otta Jónasdóttir hobba@krummi.is

Krummakot

Linda Lárusdóttir linda@krummi.is

Menntaskólinn á Akureyri

Upplýsingar um farsældarþjónustu MA

Verkmenntaskólinn á Akureyri
 
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN)
Ragnheiður Diljá Gunnarsdóttir, ljósmóðir í ung- og smábarnavernd.
Hrafnhildur Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur.
 
Tengiliðir fyrir ungmenni á aldrinum 16-18 ára sem eru ekki í framhaldsskóla
Anna Dögg Sigurjónsdóttir, ráðgjafi á velferðarsviði AkureyrarbæjarKatrín Elísa Einisdóttir, ráðgjafi á velferðarsviði Akureyrarbæjar

  

Málstjóri

Barn sem hefur þörf fyrir fjölþætta þjónustu á öðru og/eða þriðja stigi til lengri tíma fær málstjóra frá félagsþjónustu Akureyrarbæjar eða barnavernd Norðurlands eystra. Hlutverk málstjóra er að veita frekari upplýsingar og ráðgjöf og leiða samþættingu þjónustu. Málstjóri ber ábyrgð á gerð stuðningsáætlunar og stýrir stuðningsteymi og fylgir því eftir að þjónusta sé veitt í samræmi við áætlun.

Samþætting er unnin samkvæmt Lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna sem tóku gildi 1. janúar 2022. Farið er með persónulegar upplýsingar málsaðila skv. ströngustu reglum um persónuvernd og gögn vistuð skv. lögum þar að lútandi.

 

 

Síðast uppfært 22. apríl 2026
Getum við bætt efni síðunnar?