Kynningarfundur á fermingarfræðslu næsta vetrar í Eyjafjarðarsveit

Stuttur kynningarfundur á fræðslu næsta vetrar '26 - '27 fer fram í Munkaþverárkirkju fimmtudagskvöldið næstkomandi 21. maí kl. 20:00.

Öll ungmenni fædd árið 2013, foreldrar þeirra og forráðafólk eru hjartanlega velkomin. Farið verður yfir hvernig fræðslunni verður háttað næsta haust og vetur, ferðalag í Vatnaskóg kynnt, fermingardagar ræddir og öllum spurningum svarað.