Kynningarfundur félagsmiðstöðvarinnar Hyldýpis

Þriðjudaginn 9. september kl. 20.00 er foreldrum og forráðamönnum nemenda á mið- og unglingastigum Hrafnagilsskóla, boðið á kynningarfund félagsmiðstöðvarinnar Hyldýpis. Þar munu forstöðumaður og umsjónarmenn félagsmiðstöðvarinnar kynna fyrirhugaða starfsemi vetrarins og fara yfir helstu lög og reglur sem gilda í starfseminni.

Mikilvægt er að forráðamenn barna í 8. bekk mæti á fundinn þar sem þau taka nú í fyrsta skiptið þátt í frjálsu frístundastarfi Hyldýpis. Sömuleiðis eru forráðamenn miðstigsbarna sérstaklega hvattir til að koma því í fyrsta skiptið verður nú boðið upp á starfsemi í félagsmiðstöðinni fyrir þann hóp.