|
Almenn erindi
|
|
1.
|
E2604039 - Ársreikningur Eyjafjarðarsveitar 2025
|
| |
Ársreikningur Eyjafjarðarsveitar fyrir árið 2025 er hér lagður fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn.
|
|
|
| |
Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 274,1 m.kr. og rekstrarniðurstaða A hluta um 283,0 m.kr. Rekstrartekjur námu tæpum 2,0 milljörðum kr. og hafa aukist frá fyrra ári.
Sjóðstreymi frá rekstri var öflugt, en handbært fé frá rekstri nam 415,8 m.kr. fyrir A og B hluta. Sú niðurstaða sýnir að rekstur sveitarfélagsins stendur vel undir daglegum útgjöldum og skapar svigrúm til fjárfestinga. Á árinu var ráðist í umfangsmiklar fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum, einkum í fasteignum og innviðum, sem námu um 1.012 m.kr. hjá A og B hluta. Þær framkvæmdir skýra að stórum hluta lækkun handbærs fjár á árinu.
Efnahagsstaða sveitarfélagsins er sterk. Eigið fé A og B hluta nam 2.272,7 m.kr. í árslok og hefur aukist verulega milli ára. Þrátt fyrir viðamiklar fjárfestingar er skuldaviðmið samstæðunnar einungis 24,8%, en áætlanir gerðu ráð fyrir 25,2% við lok árs, sem er vel innan þeirra marka sem lög og viðmið gera ráð fyrir.
Lágt skuldaviðmið skýrist fyrst og fremst af góðu sjóðstreymi frá rekstri og jákvæðri rekstrarniðurstöðu, sem gerir sveitarfélaginu kleift að fjármagna stóran hluta framkvæmda með eigin fé. Þá hefur uppbygging eigna, einkum í fasteignum og innviðum, styrkt efnahagsreikninginn án þess að skuldsetning hafi aukist í sama mæli.
Stærstu útgjaldaliðir rekstursins eru málaflokkar fræðslu- og uppeldismála, félagsþjónusta og æskulýðs- og íþróttamála, sem endurspeglar lögbundið hlutverk sveitarfélagsins og þjónustu við íbúa.
Sveitarstjórn lýsir yfir mikilli ánægju með niðurstöðu ársreikningsins, sem staðfestir sterka fjárhagslega stöðu sveitarfélagsins, öflugan rekstur og þá jákvæðu þróun sem hefur átt sér stað á undanförnum árum, þar sem uppbygging, þjónusta og vöxtur fara skynsamlega saman.
Sveitarstjórn vísar samhljóða ársreikningnum til síðari umræðu í sveitarstjórn.
|
|
|
|
|
|
2.
|
E2604012 - Þormóðsstaðavirkjun í Sölvadal í Eyjafjarðarsveit
|
| |
Tekinn er fyrir á ný drög af samningi vegna virkjanaáforma Arctic Hydro hf. í landi sveitarfélagsins að Þormóðsstöðum.
Sveitarstjórn frestaði afgreiðslu málsins á síðasta fundi og fól sveitarstjóra að koma ábendingum til skila í samræmi við umræður á fundinum. Samningsdrög hafa verið uppfærð í samræmi við ábendingu sveitarstjórnar eins og fram kemur í nýrri grein 6.2 um sérákvæði vegna skógræktarsamnings í landi Þormóðsstaða.
Þar sem málið varðar fleiri aðila er óskað trúnaðar á gögnum málsins meðan það er í meðferð.
|
|
|
| |
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi samning um rannsóknar- og nýtingarleyfi vegna Þormóðsstaðavirkjunar milli Arctic Hydro hf. og landeigenda, dags. í mars 2026
Sveitarstjórn telur samninginn hagfelldan fyrir sveitarfélagið og í samræmi við þá framtíðarsýn sem höfð var að leiðarljósi við kaup sveitarfélagsins á landinu að Þormóðsstöðum. Þar fara náttúra og virkjanakostir vel saman með útivist og landbúnaði. Ef af virkjunarframkvæmdum verður skapar samningurinn framtíðartekjur fyrir sveitarfélagið, styrkir raforkuöryggi á svæðinu og eykur forsendur fyrir uppbyggingu í samfélaginu með auknu framboði af orku.
|
|
|
|
|
|
3.
|
E2604018 - Öngulsstaðir 2 L152863 - merkjalýsing vegna nýrrar lóðar
|
| |
Landeigendur Öngulsstaða 2 sækja um að fá að stofna lóð á jörðinni sem fengi staðfangið Öngulsstaðir 6. Jafnframt er sótt um afmörkun spildu úr landi Öngulsstaða 2 sem á að sameinast lóðinni Öngulsstaðir L221874.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 451. fundi sínum.
|
|
|
| |
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að framlögð merkjalýsing verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024. Jafnframt að lóðin fái staðfangið Öngulsstaðir 6.
|
|
|
|
|
|
4.
|
E2604021 - Hranastaðir L152652 - afmörkun lóðar undir hænsnahús
|
| |
Landeigendur Hranastaða L152652 sækja um stofnun 11.760,8 fm lóðar undir hænsnahús á jörðinni skv. merkjalýsingu unna af Hákoni Jenssyni dags. 30.03.2026. Sótt er um að nýja lóðin fái staðfangið Þorbjargarhagi.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 451. fundi sínum.
|
|
|
| |
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að framlögð merkjalýsing verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024. Jafnframt að lóðin fái staðfangið Þorbjargarhagi.
|
|
|
|
|
|
5.
|
E2604027 - Umsókn um uppsetningu hraðhleðslustöðva í Eyjafjarðarsveit
|
| |
Erindi frá Instavolt Iceland ehf. þar sem óskað er eftir afnotum af bílastæðum í Eyjafjarðarsveit til uppsetningar og reksturs hraðhleðslustöðva fyrir rafbíla.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 451. fundi sínum og bendir á að gert sé ráð fyrir hraðhleðslustöðvum á bílaplani við Laugarborg. Að öðru leiti taldi nefndin sig ekki hafa heimild til frekari afgreiðslu og vísaði málinu til sveitarstjórnar.
|
|
|
| |
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að skoða málið betur.
|
|
|
|
|
|
6.
|
E2405027 - Reykhús - umsókn um framkvæmdaleyfi til efnistöku 2024
|
| |
Páll Ingvarsson sækir um framlengingu á framkvæmdaleyfi til efnistöku úr Eyjafjarðará í landi Reykhúsa (E24C) sem gefið var út 31. maí 2024 og gildir til 15. maí 2026. Fyrra leyfi heimilaði efnistöku 15.000 rúmmetra af sandi en eftir á að taka 6000 rúmmetra. Sótt er um að framlengja framkvæmdaleyfið til áramóta 20262027 og fylgja gögn fyrri framkvæmdaleyfisumsóknar fundargögnum.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 451. fundi sínum.
|
|
|
| |
Anna Guðmundsdóttir víkur af fundi undir þessum fundarlið. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framlengingu á gildistíma framkvæmdaleyfis til efnistöku úr Eyjafjarðará í landi Reykhúsa (E24C) til 31. desember 2026, á grundvelli fyrirliggjandi gagna, enda hafi ekki orðið breytingar á umfangi eða forsendum framkvæmdarinnar frá útgáfu leyfis þann 31. maí 2024.
|
|
|
|
|
|
7.
|
E2604035 - Hólmatröð 12 - Umsókn um byggingarleyfi
|
| |
Erindi dagsett 22.04.2026 þar sem JS Trésmíði ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi/heimild fyrir raðhúsi á lóðinni Hólmatröð 12 í Eyjafjarðarsveit. Erindinu fylgja uppdrættir eftir Vigfús Halldórsson. Samkvæmt framlögðum gögnum fer fyrirhugað byggingarmagn 57,1 m² umfram heimilt byggingarmagn á lóðinni.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 451. fundi sínum.
|
|
|
| |
Sveitarstjórn samþykkir byggingarumsóknina samhljóða sem óverulegt frávik frá deiliskipulagi. Þar sem erindið varðar ekki aðra aðila en umsækjanda sjálfan og sveitarfélagið þá verði fallið frá grenndarkynningu.
|
|
|
|
|
|
8.
|
E2509010 - Hótel við skógarböðin - DSK breyting vegna hreinsistöðvar
|
| |
Uppfærð tillaga að deiliskipulagsbreytingu vegna staðsetningar hreinsistöðvar fyrir Ytri-Varðgjá, baðstað og hótel lögð fram. Breytingin var upphaflega grenndarkynnt í byrjun árs þar sem bárust athugasemdir og var skipulagshönnuði falið að uppfæra breytingartillöguna með tilliti til þeirra. Hönnuður hefur nú fundað með fulltrúa Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra sem hefur samþykkt fyrirliggjandi breytingartillögu fyrir hönd HNE.
Skipulagsnefnd tók málið fyrir á 451. fundi sínum.
|
|
|
| |
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi breytingartillögu á deiliskipulagi Ytri-Varðgjár, baðstaðar og hótels, vegna staðsetningar hreinsistöðvar, enda hefur verið brugðist við kröfum frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra varðandi hreinsistöðina með tilliti til viðtakans Eyjafjarðarár á svæðinu.
|
|
|
|
|
|
9.
|
E2604037 - Kaupangssvæðið - ásýnd byggðar og aðalskipulag
|
| |
Erindi þar sem óskað er eftir breytingu á aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar vegna Kaupangssvæðisins, annars vegar um afmörkun byggingarsvæða og hins vegar um ákvæði er varða ásýnd, byggingarstíl og yfirbragð byggðar.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 451. fundi sínum.
|
|
|
| |
Sveitarstjórn tekur undir sjónarmið skipulagsnefndar og hafnar áformum um stækkun íbúðarsvæðisins enda er framboð íbúðarsvæða á skipulagi nú þegar umfram þörf samkvæmt húsnæðisáætlun.
Þá tekur sveitarstjórn einnig undir sjónarmið skipulagsnefndar um að ákvæði varðandi byggingarstíl eigi heima í deiliskipulagi en ekki aðalskipulagi. Erindi þess efnis er hafnað.
|
|
|
|
|
|
10.
|
E2602027 - Þverá - framkvæmdaleyfisumsókn vegna efnistöku 2026
|
| |
Sótt er um efnistöku úr Þverá í Eyjafjarðarsveit. Um er að ræða einskiptisaðgerð til að ná upp efni og dýpka árfarveginn aftur en að sögn landeiganda er grunnvatnsstaða orðin mjög há á svæðinu í kring og veruleg hætta orðin á að áin brjóti sig út úr farveginum bæði til suðurs og norðurs.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 450. fundi sínum og frestaði erindinu meðan kallað var eftir umsögn Vegagerðarinnar sem nú liggur fyrir.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 451. fundi sínum.
|
|
|
| |
Sveitarstjórn samþykkir samhjóða útgáfu framkvæmdaleyfis til efnistöku í Þverá. Framkvæmdaleyfi skal einungis ná til efnistöku í landi Þverár eins og það er skilgreint í landeignaskrá á vef HMS.
Framkvæmdaleyfi skal taka mið af umsögn Vegagerðarinnar við útgáfu framkvæmdaleyfisins þar sem ekki verði farið upp fyrir svæði númer tvö og að fylgst verði með þróun farvegar við stokk á vegi 829-01. Efnistökuaðili verði ábyrgur fyrir að bregðast við ef breyting verður á farveginum við stokkinn sem rekja má til efnistökunnar. Þá skal að auki taka mið af umsögnum annarra aðila varðandi tímamörk efnistöku sem skuli enda í lok árs 2027.
|
|
|
|
|
|
11.
|
E2601024 - Eyjafjarðarbraut eystri - umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir tímabundna haugsetningu og vinnslu efnis
|
| |
N10b ehf. sækir um framlengingu til 2-3 mánaða á framkvæmdaleyfi til tímabundinnar haugsetningar á grjóti og efnisvinnslu á tanga vestan Eyjafjarðarbrautar eystri. Núverandi framkvæmdaleyfi, sem samþykkt var í sveitarstjórn 29. janúar sl., rennur út 15. apríl nk.
Sveitarstjórn frestaði á síðasta fundi afgreiðslu erindinsins til þessa fundar og kallaði eftir afstöðu Óshólmanefndar.
Umsögn nefndarinnar liggur nú fyrir og kemur þar fram að "af sömu ástæðu og fyrr mun nefndin ekki leggjast gegn þessarri afmörkuðu framlengingu enda verði fyllsta öryggis gætt varðandi hugsanlega mengun og reynt að lágmarka truflun á fuglalífið. Nefndin leggur ríka áherslu á að ekki verði um frekari framlengingar að ræða heldur verði gengið frá tanganum í síðasta lagi í lok ágústmánaðar 2026 eins og hann var áður en vinna á honum hófst. Bent er á að yfirborð tangans var óslétt með steinhnullungum og fremst á honum hóll eða hæð. Þar leituðu ýmsir andfuglar vars á öllum árstímum og æskilegt að frágangur verði með svipuðu sniði."
|
|
|
| |
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að gefa út tímabundið framkvæmdaleyfi til haugsetningar á grjóti og efnisvinnslu á tanga vestan Eyjafjarðarbrautar eystri.
Útgáfa framkvæmdaleyfisins skal bundin við viðauka IV vegna marka um hávaða samkvæmt reglugerð um hávaða nr. 724/2008. Efnisvinnsla verður einungis heimil milli klukkan 7-19 virka daga og óheimil um helgar. Efnisflutningar eru heimilir virka daga 7-19 og um helgar 10-19. Framkvæmdaleyfi verður gefið út til 15.júlí og skal það ekki framlengt aftur.
Frágangur svæðisins skal taka mið af tillögu Óshólmanefndar hvað varðar yfirborð og skal honum ljúka ekki síðar en 31.júlí.
|
|
|
|
|
|
12.
|
E2511018 - Starfsemi Kristnesspítala
|
| |
Undanfarna mánuði hafa sveitarstjórn og sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar unnið markvisst að því að fara yfir stöðu mála varðandi Kristnesspítala.
Greinar hafa verið ritaðar og fundir haldnir með stjórnendum Sjúkrahússins á Akureyri í þeim tilgangi að greina stöðuna og leggja fram tillögur um leiðir til úrlausnar, meðal annars með því að skipta viðfangsefninu niður í afmarkaða þætti.
Erindi hafa verið send til heilbrigðisráðherra, fjármálaráðherra, mennta- og barnamálaráðherra, þingmanna kjördæmisins og á Ríkiseignir. Jafnframt hafa farið fram samtöl við þingmenn kjördæmisins sem hafa lýst áhyggjum af stöðunni.
Sveitarstjóri og oddviti sveitarstjórnar hafa átt samtöl við fjármálaráðherra og við þingmenn kjördæmisins ásamt stjórnendum SAK.
Tillögur Eyjafjarðarsveitar hafa hingað til fyrst og fremst beinst að því að einfalda verkefnið með því að færa eignarhald íbúða, gatnakerfis og veitna af herðum ríkisins og úr umsjón Sjúkrahússins á Akureyri. Með því gæti stofnunin einbeitt sér að lögbundinni kjarnastarfsemi sinni.
Málið hefur þó þróast á undanförnum misserum og umfang þess aukist með nýjum upplýsingum um afar slæmt ástand spítalans og íbúðarhúsnæðis á svæðinu, sem ekki lá fyrir í upphafi. Ljóst er að þörf fyrir viðbrögð eru nú bæði umfangsmeiri, viðkvæmari og brýnni en upphaflega lá fyrir.
|
|
|
| |
Sveitarstjórn óttast að þegar liggi fyrir sú stefna að færa starfsemina frá Kristnesi og finna henni nýjan stað.
Afstaða sveitarstjórnar er skýr, hún leggst gegn því að starfsemin verði lögð af á Kristnesi og telur að sú aðstaða og það umhverfi sem þar hafi verið byggt upp í gegnum árin sé einkar vel til endurhæfingar fallin. Þá telur sveitarstjórn að ekki verði í neinni fyrirsjáanlegri framtíð byggð upp álíka aðstaða annarstaðar sem hafi sömu kosti fram að færa.
Sveitarstjórn leggur þó áherslu á að ef slík ákvörðun verði tekin, að leggja starfsemina alfarið af á Kristnesi, þá sé brýnt að slík ákvörðun liggi fyrir fljótt og örugglega svo unnt verði að hefja vinnu við að finna húsinu og svæðinu nýtt og farsælt hlutverk.
Óskir sveitarstjórnar eru: Að ákvarðanir um framtíð Kristnesspítala liggi fyrir hið fyrsta. Að endurhæfingarstarfsemi Sjúkrahússins á Akureyri verði áfram rekin á Kristnesi. Að ríkið skýri sem fyrst framtíðarstöðu eignarhalds á íbúðarhúsnæði á svæðinu. Að ef starfsemi Kristnessspítala verður flutt eða lögð niður hefjist tafarlaust vinna við að finna húsnæðinu ný not, innan eða utan eignarhalds ríkisins. Að Eyjafjarðarsveit verði virkur þátttakandi í ákvörðunum um framhaldið.
|
|
|
|
|
|
13.
|
E2604040 - Gjaldskrár Eyjafjarðarsveit
|
| |
Almenn umræða um gjaldskrár sveitarfélagsins.
|
|
|
| |
Undanfarin ár hafa leikskólagjöld ávallt tekið hækkun að hausti út frá vísitölu sem áætla má að verði nú um 5%.
Við síðustu áætlunargerð tók sveitarstjórn ákvörðun um að miða gjaldskrárhækkanir við 2,5% í þeirri viðleitni að halda aftur af verðbólgu.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að gjaldskrárhækkun leikskóla og frístundar fyrir komandi skólaár verði í samræmi við aðrar gjaldskrárhækkarnir, 2,5%.
|
|
|
|
|
|
14.
|
E2501010 - Ofanflóðaúttekt - Veðurstofa Íslands
|
| |
Lögð er fram til kynningar skýrsla Veðurstofunnar vegna ofanflóðaúttektar í Eyjafjarðarsveit.
Hættumatsnefnd var stofnuð í mars árið 2021 af Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu í kjölfar beiðni sveitarfélagsins vegna skriðufalla í Hleiðargarðsfjalli ofan við bæjina að Gilsá.
Formaður nefndarinnar var Gunnar Guðni Tómasson en í nefndinni sátu að auki Fjóla Guðrún Sigtryggsdóttir, Finnur Yngvi Kristisson (sveitarstjóri) og Ásta Arnbjörg Pétursdóttir (sveitarstjórnarfulltrúi).
Vinna skýrlunnar var á höndum Veðurstofu Íslands og hefur verið í gangi allt frá stofnun nefndarinnar.
|
|
|
| |
Sveitarstjórn þakkar Veðurstofunni fyrir ítarlega vinnu við gerð ofanflóðamats í sveitarfélaginu og óskar eftir að Veðurstofan opinberi og kynni skýrsluna við fyrsta tækifæri fyrir sveitarstjórn, skipulagsnefnd og hlutaðeigandi aðilum í byrjun júní.
Sveitarstjórn vísar skýrslunni til skipulagsnefndar og í vinnu við aðalskipulag sveitarfélagsins. Í aðalskipulaginu skal vísa í skýrsluna þannig að mið sé tekið af henni við staðsetningu mannvirkja og gerð deiliskipulaga í framtíðinni og eftir atvikum óskað staðbundins mats þar sem þörf er talin á samkvæmt skýrslunni.
|
|
|
|
|
|
Fundargerðir til kynningar
|
|
15.
|
E2604019 - Tónlistarskóli Eyjafjarðar - Fundargerð 153. fundar skólanefndar
|
| |
Lögð fram til kynningar fundargerð 153. fundar skólanefndar Tónlistaskóla Eyjafjarðar.
|
|
|
| |
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
|
|
|
|
|
|
16.
|
E2604020 - Tónlistarskóli Eyjafjarðar - Fundargerð 152. fundar skólanefndar
|
| |
Lögð fram til kynningar fundargerð 152. fundar skólanefndar Tónlistaskóla Eyjafjarðar.
|
|
|
| |
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
|
|
|
|
|
|
17.
|
E2604024 - Fundargerðir 2026 farsældarráðs Norðurlands eystra
|
| |
Lögð fram til kynningar fundargerð 5. fundar Farsældaráðs Norðurlands eystra.
|
|
|
| |
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
|
|
|
|
|
|
18.
|
E2604033 - HNE - Fundargerð 247
|
| |
Lögð farm til kynningar 247. fundargerð Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra.
|
|
|
| |
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
|
|
|
|
|
|
19.
|
E2604036 - Norðurorka - Eigendafundur 9. apríl 2026
|
| |
Lögð fram til kynningar fundargerð eigendafundar Norðurorku frá 9.apríl 2026.
|
|
|
| |
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
|
|
|
|
|
|
20.
|
2604012F - Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 451
|
| |
Fundargerð 451. fundar skipulagsnefndar lögð fram til kynningar.
|
|
|
| |
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
|
|
|
|
|
|
21.
|
2604009F - Velferðar- og menningarnefnd - 22
|
| |
Fundargerð 22. fundar Velferðar- og menningarnefndar lögð fram til kynningar.
|
|
|
| |
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
|
|
|
|
|
|
22.
|
2604003F - Öldungaráð - 5
|
| |
Fundargerð 5. fundar öldungaráðs lögð fram til kynningar.
|
|
|
| |
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
|