Bjarki Ármann Oddsson nýr skrifstofu- og fjármálastjóri Eyjafjarðarsveitar

Fréttir
Bjarki Ármann Oddsson
Bjarki Ármann Oddsson

Bjarki Ármann Oddsson hefur verið ráðinn sem skrifstofu- og fjármálastjóri Eyjafjarðarsveitar og tekur hann við starfinu af Stefáni Árnasyni þann 1.maí næstkomandi.

Bjarki hefur mikla reynslu af sveitarstjórnarmálum og stjórnsýslu sveitarfélaga þar sem hann hefur starfað í sveitarstjórnarmálum síðastliðinn áratug. Hefur hann meðal annars starfað sem íþrótta- og frístundastjóri Fjarðabyggðar, sem forstöðumaður tómstundamála og sem sviðsstjóri og forstöðumaður skrifstofu fræðslu- og lýðheilsusviðs Akureyrarbæjar. Bjarki hefur í störfum sínum meðal annars séð um rekstur og starfsmannahald stofnana og málaflokka, haldið utan um stefnumótunarvinnu og fjárhagsáætlanagerð, innleitt breytingar og komið að hagræðingaraðgerðum.

Bjarki hefur menntað sig á sviði opinberrar stjórnsýslu þar sem hann náði sér í meistaragráðu í faginu frá Háskóla Íslands. Þá er Bjarki með BA í samfélags- og hagþróunarfræði frá Háskólanum á Akureyri.

Bjarki Ármann býr í Hrafnagilshverfi og er uppalinn í sveitarfélaginu. Hann er giftur Konný Bjargey Benediktsdóttur og eiga þau fjögur börn á leik- og grunnskólaaldri.

Bjarki kemur með mikla þekkingu að borðinu og er ánægjuleg viðbót við teymi sveitarfélagsins. Við bjóðum Bjarka velkominn til starfa.