Ytri-Varðgjá íbúðarsvæði, Eyjafjarðarsveit – kynning deiliskipulagstillögu

Fréttir

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 7. desember sl. að vísa skipulagstillögu vegna nýs deiliskipulags fyrir íbúðarsvæði í landi Ytri-Varðgjár í Eyjafjarðarsveit, í kynningu skv. 4. mgr. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagssvæðið nær yfir 18,5 ha svæði í landi Ytri-Varðgjár sem í gildandi Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030 er að mestu skilgreint sem íbúðarsvæði ÍB12 og að litlum hluta sem skógræktar- og landgræðslusvæði. Nýja deiliskipulagið gerir ráð fyrir 35 lóðum fyrir íbúðarhús og verður aðkoma að svæðinu frá Veigastaðavegi.

Skipulagstillagan er aðgengileg á sveitarskrifstofu Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9 Hrafnagilshverfi, milli 20. desember 2023 og 14. janúar 2024, á vef Skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is undir málsnúmeri 623/2023 og einnig hér fyrir neðan. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að koma athugasemdum á framfæri til 14. janúar 2024. Hægt er að koma athugasemdum á framfæri undir málinu á vef Skipulagsgáttar með innskráningu rafrænna skilríkja. Frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9, 605 Akureyri, eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is.

Opið hús vegna kynningarinnar fer fram á sveitarskrifstofu Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9 þriðjudaginn 9. janúar 2024 milli kl. 12:00 og 15:00 og mun skipulags- og byggingarfulltrúi vera viðstaddur og veita upplýsingar og taka við athugasemdum um tillöguna.

Ytri-Varðgjá íbúðarsvæði - deiliskipulagsuppdráttur
Ytri-Varðgjá íbúðarsvæði deiliskipulagstillaga - greinargerð

Skipulags- og byggingarfulltrúi