Ferðaþjónusta á Leifsstöðum 2, Eyjafjarðarsveit – auglýsing aðal- og deiliskipulagstillögu

Fréttir Aðalskipulagsauglýsingar Deiliskipulagsauglýsingar

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 10. febrúar 2022 að vísa aðal- og deiliskipulagstillögu fyrir ferðaþjónustu á Leifsstöðum 2 í auglýsingu skv. 31. gr. og 1. mgr. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í aðalskipulagstillögunni felst að verslunar og þjónustusvæði VÞ4 er stækkað úr 0,7 ha í 7,7 ha, íþróttasvæði ÍÞ2 fellt út og frístundasvæði F3b fært inn á skipulag. Deiliskipulagstillagan tekur til byggingar tveggja íbúðarhúsa, 1500 fm viðbyggingar við hótel, þriggja frístundahúsa, tíu gistihýsa, starfsmannahúss og aðstöðuhúss. Auk þess er gert ráð fyrir tjaldsvæði, götum milli húsa og landmótun á svæðinu.
Skipulagstillögurnar eru aðgengilegar á sveitarskrifstofu Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9 Hrafnagilshverfi, milli 16. mars og 29. apríl 2022 sem og á heimasíðu sveitarfélagsins, esveit.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á gera athugsemdir við skipulagstillöguna til föstudagsins 29. apríl 2022. Athugasemdir skulu vera skriflegar og skulu berast til Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9, Hrafnagilshverfi, 605 Akureyri, eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is.

Greinargerð

Deiliskipulagsuppdráttur 01

Deiliskipulagsuppdráttur 02

Breyting á aðalskipulagi

 

Skipulags- og byggingarfulltrúi