Handverkshátíð 2009


Handverkshátíð 2009 verður haldin dagana 7.-10. ágúst


Setning hátíðarinnar verður föstudaginn 7. ágúst klukkan 11:30 að morgni við Hrafnagilsskóla. Athugið breyttan opnunartíma en hátíðin er opin föstudag til mánudags að þessu sinni frá klukkan 12:00-19:00 alla dagana.
Þetta árið munu félögin í sveitinni koma meira en áður að hátíðinni en útisvæði og störf hafa verið skipulögð í samvinnu við þau með fjáröflunarmöguleika í huga.

Í tengslum við hátíðina verða að vanda haldin spennandi námskeið

Dagskrá hátíðarinnar verður send út í Eyjafjarðarsveit í vikunni fyrir hátíð ásamt því að hægt er skoða upplýsingar á www.handverkshatid.is

Allar nánari upplýsingar gefur Dóróthea í síma 864-3633