Leikskólinn Krummakot í Eyjafjarðarsveit vill ráða starfsmann í hlutastarf

Fréttir

Um er að ræða 50% stöðu í þrifum, öðrum tilfallandi verkefnum og afleysingu á deildum.

Leikskólinn er í Hrafnagilshverfi, aðeins tíu kílómetra sunnan Akureyrar.

Við mat á umsóknum er horft til eftirfarandi:
• Lipurðar í samskiptum
• Íslenskukunnáttu
• Reynslu og/eða menntun sem nýtist í starfi

Sjá nánar á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar www.esveit.is

Frekari upplýsingar veitir Erna Káradóttir leikskólastjóri í síma 464-8120, netfang erna@krummi.is.

Umsóknarfrestur er til og með 27. ágúst 2020. Umsóknum skal fylgja ferilskrá og upplýsingar um meðmælendur. Umsóknir skal senda til leikskólastjóra á netfangið erna@krummi.is