Svæðisskipulag Eyjafjarðar - skipulagslýsing

Í samræmi við 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 auglýsir svæðisskipulagsnefnd lýsingu á skipulagsverkefninu.

Í lýsingunni er gerð grein fyrir hvaða áherslur nefndin hefur við gerð skipulagsins, forsendur þess og fyrirliggjandi stefna.

Umrædd gögn liggja einnig frammi á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar.

Þeir sem vilja gera athugasemdir við fyrirliggjandi gögn eða koma ábendingum um efni þeirra á framfæri við samvinnunefndina geta hvenær sem er skilað þeim á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar.

Þegar endanleg tillaga liggur fyrir mun hún kynnt almenningi með formlegum hætti á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt og auglýst með áberandi hætti í samræmi við ákvæði skipulagslaga.

Akureyri 5. okt. 2011

Samvinnunefnd um Svæðisskipulag Eyjafjarðar