Í vetur verður bókaklúbbur haldinn fyrsta fimmtudag í mánuði kl. 16:30 í samvinnu við og á bókasafni Eyjafjarðarsveitar fyrir alla sem vilja hitta fleiri yfir kaffibolla og spjalla um lesefnið hverju sinni. Utanumhald verður í höndum Önnu Guðmundsdóttur og Guðrúnar Arnbjargardóttur sem báðar eru félagskonur í kvenfélaginu Iðunni, en klúbburinn er opinn fyrir alla, eins og áður sagði.
Fyrsta bókin hefur verið ákveðin; Kular af degi, höf. Kristín Marja Baldursdóttir.
Hægt er að nálgast eintök hjá Margréti bókasafnsstýru á bókasafninu.
Þeir sem taka þátt í bókaklúbbnum skiptast á að tilnefna bók mánaðarins.
Oftast 😉 fyrsti fimmtudagur í mánuði:
2. október
6. nóvember
4. desember
8. janúar
5. febrúar
5. mars
9. apríl
Hlökkum til að sjá ykkur á bókasafninu 😃
Kvenfélagið Iðunn
P.s. Bókasafnið er staðsett í kjallara íþróttahúss Hrafnagilsskóla og er gengið inn að austan. Ekið er niður með skólanum að norðan. Einnig er hægt að nota sundlaugarinnganga og ganga úr anddyri niður í kjallara.